|
Skykort.com er sérstakt vefsvæði utan um sölu á Sky móttökurum og öllum aukahlutum þeim tengdum, en ásamt því útvegum við viðskiptavinum okkar áskriftarkort að Sky samdægurs og einnig Freesatkortin vinsælu, sem ganga einnig í Dragon köm. Freesat kortin eru virkjuð og því þurfa kaupendur þeirra ekki að eiga Sky digibox, heldur stinga þeim beint í Dragoninn og horfa áhyggjulausir næstu tvö árin:-)
Hver rekur Skykort.com?
Skykort.com er rekið af Þorsteini Gunnarssyni, Fossheiði 5, 800 Selfossi, kt. 030358 - 2879, VSK nr.: 82788, þ.e sama aðila og rekur Skrifa.com ásamt vefversluninni Versla.com. Því njóta viðskiptavinir skykort.com sömu góðu þjónustunnar þ.e símaþjónustu alla daga vikunnar frá kl. 13-23 í síma 893 5804.
En afhverju annað vefsvæði?
Það er fyrst og fremst hugsað til aðgreiningar fyrir þá sem eru að fóta sig í þessum gervihnattaheimi og því þægilegra fyrir þá að skoða það sem í boði er aðskilið. Þ.e Sky annarsvegar(hér) en hefðbundnir gervihnattamóttakarar og allt um þá á Skrifa.com. Með þessu móti teljum við minni líkur á ruglingi við upplýsingaleit.
Hve langt er ferlið frá því að samningur er gerður og þar til ég get farið að horfa?
Skykort.com eiga allan búnað á lager og því er ekkert til fyrirstöðu að þetta sé afhent samdægurs.
Eru áskriftarkortin svokölluð sjóræningjakort?
Nei þetta eru áskriftarkort, útgefin af SKY(sem einnig innheimtir áskriftargjaldið beint)
Skykort.com er því ekki söluaðili áskriftarinnar, heldur BSkyB(British Sky Broadcasting) þ.e SKY í Bretlandi.
En hvað ef SKY endurnýjar kort sín?
Þegar Sky skiptir út kortum, eru nýju kortin send út nokkru áður en skipta þarf, svo það skapar engin vandræði.
Hversu lengi endist áskriftarkortið?
Það endist eins lengi og þú greiðir áskriftina.
Get ég breytt áskriftarpakkanum á 12 mánaða samningstímanum?
Já þú hefur bara samband við okkur og við sjáum til þess að breytingin eigi sér stað. Gerist þó ekki fyrr en við næstu mánaðarmót eftir að breytingu er óskað.
Get ég sett upp diskinn og annan búnað sjálfur?
Já flestir geta það og margir gera það, en hinsvegar ráðleggjum við mönnum frekar að fá fagmann til að innstilla diskinn. Það er einföld aðgerð fyrir vanan mann, þar sem diskurinn er stilltur í fasta stillingu og því flótlegt og ódýrt. Við erum í samstarfi við fagmenn á þessu sviði en getum einnig leiðbeint mönnum við uppsetninguna.
Hverjir eru ábyrgðarskilmálarnir?
Reikningurinn gildir sem ábyrgðarskírteini. Móttakarar og aðrar vörur eru með 12. mánaða verskmsiðjuábyrgð. Bili t.d móttakari á ábyrðartímananum, færðu, þér að kostnaðarlausu, annan móttakara meðan beðið er viðgerðar.
Hvar finn ég sjónvarpsdagskrá SKY?
Sky móttakararnir innihalda rafrænan sjónvarpsvísi, svokallað EPG(Electronic Program Guide) en þar sérðu dagskrá allra stöðva með því að smella á einn takka. Þessi sjónvarpsvísir flokkar efnið og er einstaklega einfaldur í notkun. Einnig er hægt að nálgast dagskrá stöðvana á hinum ýmsu síðum á netinu.
Get ég forritað fjarstýringuna til að nota á sjónvarpið líka?
Já ef þú hefur talnakóda þíns sjónvarsptækis. Sjá Fjarstýringarkódar sjá einnig http://www.satcure.co.uk/tech/digicode.htm
Hvað hefur Sky fram yfir aðra pakka?
Yfir 160 sjónvarpsrásir á ensku
Yfir 80 útvarpsrásir á ensku
Yfirburða mynd- og hljóðgæði(DVD/CD) - Tengimöguleikar við hlómtæki og heimabíó
Rafrænan sjónvarpsvísi(EPG) með efnisflokkun og áminningarkerfi.(þú skoðar dagskrá hinna ýmsu stöðva og merkir við það sem þig langar að horfa á og horfir síðan t.d á aðra rás þar til þátturinn/kvikmyndin byrjar en þá koma skilaboð á skjáinn um að sýning sé að hefjast og skiptir yfir á val þitt.
Gagnvikni, en t.d getur þú valið um mismunandi sjónarhorn, mismunandi leiki og annað í þeim dúr á gagnvirkum rásum eins og Sky Sport Extra, Einnig er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar með því að smella á rauða takkann í útsendingu t.d Formúlunnar eða kappleikja.
Þá er hægt að fletta upp fréttum og slíku með sama takka á rásum eins og SKY NEWS
Sjálfvirk uppfærsla rása eftir því sem þær bætast við.
Allar aðgerðir á fjarstýringu eru einkar einfaldar og þægilegar jafnt fyrir börn sem fullorðna.
Hver er lámarks áskriftartími?
Lámarks áskriftartími er 12 mánuðir og er ekki hægt að kaupa áskrift í skemmri tíma.
Hvað ef Sky Digiboxið hagar sér eitthvað undarlega?
Grunn endurræsingar er þörf:
1. Aftengdu rafmagnssnúruna aftan á móttakaranum.
2. Taktu kortið úr móttakaranum.
3. Bíddu í hálfa mínútu.
4. Tengdu rafmagnssnúruna aftur við móttakarann.
5. Innsettu kortið aftur í móttakarann og gættu þess að velja slot merkt: Sky Viewing Card og passaðu að kortið snúi rétt(Bláa hliðin upp)
6. Kveiktu aftur á móttakaranum.
En hvað ef móttakarinn, virkar enn ekki sem skildi?
Þá getur þurft að að koma á hugbúnaðaruppfærslu:
1. Vertu viss um að móttakarinn fái gott merki(signal).
2. Aftengdu rafmagnssnúruna aftan á móttakaranum.
3. Haltu síðan inni BACKUP takkanum framan á móttakaranum og tengdu rafmagnsnúruna en haldu áfram inni BACKUP takkanum þar til öll ljós loga framan á móttakaranum.
4. Móttakarinn uppfærir nú hugbúnað sinn, í gegnum gervihnöttinn, og getur sú aðgerð tekið þó nokkrar mínútur, en að uppfærslu lokinni slekkur móttakarinn á sér.
5. Ræsið nú móttakaranum á hefðbundinn hátt.
Komi aðvörunin "NO SATELITE SIGNAL IS BEING RECEIVED" á skjáinn, er líklegt að eitthvað sé að diskinum og/eða öðru honum tengdum(diskur gæti t.d hafa orðið fyrir áfalli/breytt sér/losnað), Lnb nemi gæti verið ónýtur/sambandsleysi, og/eða kaplar eða tengi spansgrænuð(hafi illa verið frá þeim gengið).
|