
| - PERSÓNUUPPLÝSINGAR & ÖRYGGI - |
|
Athugið!
Að greiðslu lokinni, er á kreditkortayfirliti þínu, viðtakandi greiðslu skráður SKRIFA.COM - TÖFRALJÓS, SELFOSSI. Er öruggt að versla á netinu? |
| Er öruggt að versla á netinu? |
Já. Þegar þú greiðir með kreditkorti þínu, fer öll færslan fram á læstri, dulkóðaðri síðu aitsafe.com, sem notar 128 bita SSL dulkóðun(Secure Socket Layer) viðurkennda af Thawte. Þetta táknar að allar upplýsingar þínar eru dulkóðaðar og engum sýnilegar nema okkur. Um leið og þú kýst að greiða með kreditkortinu, ertu flutt(ur) á læsta síðu sem vistuð er á öruggum vefþjóni aitsafe.com, þar sem upplýsingar þínar eru geymdar á dulkóðuðu formati þar til við nálgumst þær og eyðum síðan. Sértu enn í vafa um notkun kreditkorta á vefverslun okkar, er gott að hugsa til þess með hversu oft flestir rétta þessar sömu upplýsingar til aðila, sem þeir þekkja ekkert til í hinu daglega viðskiptalífi. Þ.e Þú réttir afgreiðslumanni kortið eða leggur það á borðið þar sem næsti maður í röðinni getur hæglega lesið þær upplýsingar af kortinu sem til þarf til þess að geta notað það á ólöglegan máta, enda er það raunin að þar er hættan mest. Í rauninni eru lítil og meðalstór fyrirtæki þeir helstu sem tapa á kreditkortasvindli hverskonar. Því raunin er sú að sé á þeim svindlað, greiðir korthafinn ekki fyrir svikin, þaðan af síður bankinn, heldur er það fyrirtækið sem tók við 'greiðslunni' sem situr uppi með skellinn. Þannig að í raun og veru er það öruggara að nota kreditkortið á netinu, á öruggum SSL síðum, þar sem upplýsingarnar eru svo dulkóðaðar að það tæki ár að brjóta upp kódann, heldur en það er að greiða með því í næstu verslun. Svo það kemur fyrst og fremst okkur til góða að taka einungis við sönnum kreditkortagreiðslum, svo og að gæta fyllsta öryggis heiðarlegra viðskiptavina okkar. Hvað verður um upplýsingar mínar eftir að ég hef gengið frá greiðslu/pöntun? Geymir Versla.com upplýsingarnar um mig? Sjá einhverjir aðrir upplýsinga mínar á meða á greiðsluferlinu stendur? Hvenær innheimtir þú greiðsluna? |