
| Hvaða búnað þarf ég til móttöku á Sky Digital? |
|
Þú þarft: 1)Móttakara, 2)SKYkort, 3)Gervihnattadisk ásamt lnb nema, sem hægt er að stilla á hnöttinn Astra2 á 28°austur.(Sjá neðar) 1) Sky móttakarinn - (oftast kallaður Sky digibox). Digiboxið er með innbyggðan NDS Videoguard afruglara sem sér um að lesa áskriftar- og/eða FreeSat kortið. Sky Digiboxin eru einu móttakararnir á markaði sem geta lesið og virkjað áskriftarkortin frá Sky, kortin eru þannig 'gift' þeim móttakara sem kortið er virkjað í. 2) Áskriftarkortið - Lágmarksáskrift að SKY er 12 mánuðir, en þú getur hinsvegar raðað saman því efni sem þú vilt sjá. Þú velur þér sem sagt þann áskriftarpakka sem þér líkar og síðan er gerður 12 mánaða áskriftarsamningur. Áskriftarkortið er síðan virkjað í þínum móttakara og þú getur farið að njóta þess að horfa á allt það sem Sky hefur uppá að bjóða. Áskriftargjaldið er síðan mánaðarlega tekið útaf kreditkorti viðkomandi. Athugið að nauðsynlegt er að greiða áskriftina til SKY með einhverju af eftirtöldum kreditkortum:Visa, Euro eða Mastercard. 3) Gervihnattadiskur og nemi - Stærð disks fer eftir staðsetningu á landinu. Algeng diskstærð hérlendis fyrir Sky móttöku er 80 til 100cm. Á vestanverðu landinu er signalstyrkurinn örlítið minni og því þarf t.d heldur stærri disk í Grindavík en á Neskaupstað. Einfaldur Lnb nemi fylgir diskum frá okkur. Fyrir Sky+ /Sky HD þarf hinsvegar tvöfaldan nema, til að geta fullnýtt möguleika móttakarans þ.e að geta tekið upp á 2 rásum og verið á sama tíma að horfa á afspilun af hörðum diski og svo framvegis. |
| Hve langt er ferlið frá því að samningur er gerður og þar til ég get farið að horfa? |
|
Skykort.com á allan búnað á lager og því er ekkert til fyrirstöðu að þetta sé afhent samdægurs. |
| Hvað gerist svo ef kortið hættir að virka? |
|
Líkurnar á því eru litlar ef kreditkort þitt er á annað borð í lagi og Sky fær sína greiðslu. Kæmi slík staða samt sem áður upp hefðir þú samband við SKYkort.com sem liðsinna viðskiptavinum sínum frá 13-23 alla daga vikunnar. |
| Eru áskriftarkortin svokölluð sjóræningjakort? |
|
Nei. Þetta eru áskriftarkort, útgefin af SKY(sem einnig innheimtir áskriftargjaldið beint) Skykort.com er því ekki söluaðili áskriftarinnar, heldur SKY í Bretlandi. |
| En hvað ef/þegar Sky endurnýjar kort sín? |
Þegar Sky skiptir út kortum, eru nýju kortin send út nokkru áður en skipta þarf, svo það skapar engin vandræði. |
| Hversu lengi endist áskriftarkortið? |
|
Það endist eins lengi og þú greiðir áskriftina. |
| Get ég breytt áskriftarpakkanum á 12 mánaða samningstímanum? |
Já þú hefur bara samband við okkur og við sjáum til þess að breytingin eigi sér stað. Gerist þó ekki fyrr en við næstu mánaðarmót eftir að breytingu er óskað. |
| Get ég sett upp diskinn og annan búnað sjálfur? |
Já flestir geta það og margir gera það, en hinsvegar ráðleggjum við mönnum frekar að fá fagmann til að innstilla diskinn. Það er einföld aðgerð fyrir vanan mann, þar sem diskurinn er stilltur í fasta stillingu og því flótlegt og tiltölulega ódýrt. Við erum í samstarfi við fagmenn á þessu sviði en getum einnig leiðbeint mönnum við uppsetninguna. |
| Hverjir eru ábyrgðarskilmálarnir? |
|
Reikningurinn gildir sem ábyrgðarskírteini. Móttakarar og aðrar vörur eru með 12. mánaða verskmsiðjuábyrgð. Bili t.d móttakari á ábyrgðartímananum, færðu, þér að kostnaðarlausu, annan móttakara meðan beðið er viðgerðar. VISA/EURO lán framlengir ábyrgðina um 1 ár. |
| Hvar finn ég sjónvarpsdagskrá Sky? |
Sky móttakararnir innihalda rafrænan sjónvarpsvísi, svokallað EPG(Electronic Program Guide) en þar sérðu dagskrá allra stöðva með því að smella á einn takka. Þessi sjónvarpsvísir flokkar efnið og er einstaklega einfaldur í notkun. Einnig er hægt að nálgast dagskrá stöðvana á hinum ýmsu síðum á netinu. |
| Get ég forritað fjarstýringuna til að nota á sjónvarpið líka? |
Já ef þú hefur talnakóda þíns sjónvarsptækis. Sjá einnig Fjarstýringarkódarnir |
| Hvað hefur Sky fram yfir aðra pakka? |
| Yfir 160 sjónvarpsrásir á ensku Yfir 80 útvarpsrásir á ensku Yfirburða mynd- og hljóðgæði(DVD/CD) - Tengimöguleikar við hljómtæki og heimabíó Rafrænan sjónvarpsvísi(EPG) með efnisflokkun og áminningarkerfi.(þú skoðar dagskrá hinna ýmsu stöðva og merkir við það sem þig langar að horfa á og horfir síðan t.d á aðra rás þar til þátturinn/kvikmyndin byrjar en þá koma skilaboð á skjáinn um að sýning sé að hefjast og skiptir yfir á val þitt. Gagnvikni, en t.d getur þú valið um mismunandi sjónarhorn, mismunandi leiki og annað í þeim dúr á gagnvirkum rásum eins og Sky Sport Extra, Einnig er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar með því að smella á rauða takkann í útsendingu t.d Formúlunnar eða kappleikja. Þá er hægt að fletta upp fréttum og slíku með sama takka á rásum eins og SKY NEWS Sjálfvirk uppfærsla rása eftir því sem þær bætast við. Allar aðgerðir á fjarstýringu eru einkar einfaldar og þægilegar jafnt fyrir börn sem fullorðna. |
| Hver er lágmarks samningstími? |
Lámarks áskriftartími er 12 mánuðir og er ekki hægt að kaupa áskrift í skemmri tíma. |
| Hvað ef Skyboxið fer að haga sér eitthvað undarlega? |
|
Grunn endurræsingar gæti verið þörf: 1. Aftengdu rafmagnssnúruna aftan á móttakaranum. 2. Taktu kortið úr móttakaranum. 3. Bíddu í hálfa mínútu. 4. Tengdu rafmagnssnúruna aftur við móttakarann. 5. Innsettu kortið aftur í móttakarann og gættu þess að velja slot merkt: Sky Viewing Card og passaðu að kortið snúi rétt(Bláa hliðin upp) 6. Kveiktu aftur á móttakaranum. |
| En hvað ef móttakarinn virkar ekki enn sem skildi? |
Þá getur þurft að að koma á hugbúnaðaruppfærslu, sem fer svona fram: 1. Vertu viss um að móttakarinn fái gott merki(signal). 2. Aftengdu rafmagnssnúruna aftan á móttakaranum. 3. Haltu síðan inni BACKUP takkanum framan á móttakaranum og tengdu rafmagnsnúruna en haldu áfram inni BACKUP takkanum þar til öll ljós loga framan á móttakaranum. 4. Móttakarinn uppfærir nú hugbúnað sinn, í gegnum gervihnöttinn, og getur sú aðgerð tekið þó nokkrar mínútur, en að uppfærslu lokinni slekkur móttakarinn á sér. 5. Ræsið nú móttakarann á hefðbundinn hátt. |
| Hvað þýða þessi skilaboð - No satellite signal is being received? |
Komi aðvörunin "NO SATELITE SIGNAL IS BEING RECEIVED" á skjáinn, er líklegt að eitthvað sé að diskinum og/eða öðru honum tengdum(diskur gæti t.d hafa orðið fyrir áfalli/breytt sér/losnað), Lnb nemi gæti verið ónýtur/sambandsleysi, og/eða kaplar eða tengi spansgrænuð(hafi illa verið frá þeim gengið). |